Fylltar kartöflur með kaldri seitan karrýhræru

Ég kynntist seitan í Svíþjóð og mér fannst það ótrúlega spennandi viðbót inní vegan matarmenningu. Nú hefur Ella Stína flutt inn lífrænt seitan fyrir okkur Íslendinga að kynnast. Þú getur notað það í hverskonar rétti í stað kjöts/kjötlíkis eða notað eins og þú myndir nota tófú eða baunir. Seitan er úr hveitiglúteni og er mjög próteinríkt.

Það sem ég kynntist vörunni í Svíþjóð fannst mér tilvalið að gera sænska karrýhræru og ákvað að bera fram kartöflur með. Hræran er líka góð á ristað brauð eða sem meðlæti.

Færslan er unnin í samstarfi við Ellu Stínu.

Þú þarft:

  • 6 bökunarkartöflur

  • Hvítlauksolía (valfrjálst)

Seitanið:

  • smá olía

  • 1 tsk laukduft

  • 1 tsk hvítlauksduft

  • 1 tsk karrý

Kalda hræran:

  • 400ml soja jógúrt / sýrður rjómi / mæjónses / kasjúmæjó

    veldu það sem hentar þér, ég notaði jógúrt.

  • 1 - 1 1/2 msk karrýduft

  • 1/2 tsk túrmerik

  • smá svartur pipar

  • 1/4 tsk papríkuduft

  • 2 tsk döðlusíróp

  • safi úr 1+1/2 lime + auka til að kreysta yfir fyrir auka ferskleika

  • 1 epli

  • 1 gulur laukur

  • 1/2 rauð papríka eða meira eftir smekk

  • svart salt eða jurtasalt eftir smekk

  • 2 msk smátt saxaður graslaukur

Aðferð:

  1. Byrjið á að stilla ofninn á 200°C og bakið kartöflurnar í ofninum í 1 klst. Á meðan kartöflurnar bakast er hræran græjuð.

  2. Hellið vökvanum af seitaninu og steikið seitanbitana á pönnu í smá olíu og bætið við laukdufti, hvítlauksdufti og gulu karrý.

  3. Blandið nú jógúrti / sýrðum eða mæjó í skál og bætið útí kryddum, lime safa og döðlusírópi og hrærið vel. Bætið svo útí steikta seitaninu, smátt söxuðu epli, papríku og graslauk, salti og smakkið til.

  4. Berið karrý seitanhræruna fram með bakaðri kartöflu og auka lime til að kreysta yfir. Við elskum að setja smá hvítlauksolíu inní kartöfluna líka en það þarf ekki.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Súkkulaði Creami með omega 3