BARNAMATUR
Frosnir bananar umbreytast í algjört nammi þegar maður frystir þá. Mæli svo sannarlega með því að leika sér með frosna banana. Mæli með að útbúa svona pinna fyrir litla kroppa og kalla það ís. Það verður enginn svekktur því þetta er fullkominn krakkaís sem mömmurnar stelast í.
Hver man ekki eftir að hafa gert frostpinna úr djús?Þegar ég smakkaði epla- og mangó safann frá Beutelsbacher var það það fyrsta sem ég hugsaði að það væri örugglega geggjað að gera frostpinna úr honum því hann var svo þykkur og bragðmikill.
Vinsælar Uppskriftir
“Sprinkles” er oft það sem gleður augað og gerir kræsingar meira spennandi í augum barna. Eins og flestir sem hafa fylgt mér lengi vita þá kýs ég yfirleitt að sykurlausar kræsingar fyrir krakkana mína en því eldri sem þau verða finn ég að það verður meiri áskorun.
Stroganoff… er það eitthvað sem er þekkt hér á Íslandi? Þegar ég bjó í Svíþjóð kynntist ég Stroganoff, þetta virtist rótgróið í Svíjann. Ég man ekki eftir að hafa heyrt um þetta áður en ég flutti út, en ég er svosem alin upp sem grænmetisæta og lítið um einhverja klassíska rétti heima. Hefðbundið stroganoff er gert
Ég vil meina að mamma geri besta hummus veraldar og auðvitað er hann alltaf bestur þegar mamma mælir ekkert og fer eftir tilfinningu. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera mjúkan hummus eins og hennar. Á internetinu eru miljón tips og trix hvernig þú getur gert hummusinn sem mýkstan og það er allt frá því að taka hýðir af yfir í að setja klaka útí hummusinn. Góðu fréttirnar eru þær að aðferðirnar eru margar og ég mun ekki leggja það á ykkur að afhýða hverja einustu baun.
Vissir þú að Yi pin er með marinerað stinnt tófú sem hægt er að borða beint úr pakkanum? Þetta er algjört life-hack fyrir öll tilefni, já öll! Við útbjuggum okkur t.d. sparilegan tófubakka um áramótin en við gerðum okkur líka tófubakka sem millimál um daginn. Þannig að þetta er alveg brillant að eiga til í ísskápnum eða grípa úr búðinni ef þú átt vona á gestum eða langar að geta vippað upp snarlbakka á augabragði.
Bananaís er eitthvað sem við fáum aldrei nóg af. Hann er okkar go to ís en hann þarf ekkert alltaf að vera eins og ég lofa að þetta verður ekki síðasta útfærslan af honum hér.
Hér er útgáfa þar sem við notum hann eins og ís með dýfu þar sem við toppum hann með möndlu-döðlu smjörinu frá Rapunzel sem harðna