Bláberja- og döðlusmoothie

Ég veit ekki hvort þið séuð tilbúin í þennan. Nei sko hann er svo SÆTUR að það er galið og geggjað á sama tíma. Minn algjörlega uppáhalds drykkur undanfarið og hann er meira að segja frábær fyrir kroppinn. Stútfullur af andoxunarefnum, anthocyanínum, polyphenólum, c-vítamíni, trefjum og fleiri plöntuefnum sem líkaminn elskar.

Auka bónus ….. Áttu barn með hægðatregðu? Þú þarft ekki að leita lengra, ég lofa þér að þú þarft ekki að pína þennan ofan í barn og mögulega gerir smoothie-inn kraftaverk fyrir barnið. Win win og bara Halelúja! Ég ELSKA hann.

Færslan er unnin í samstarfi við Crops á íslandi. Berin sem ég nota í smoothie-inn eru villt bláber frá merkinu Crops og eru djúpblá, rík af andoxun og extra sæt og fást í 1kg pokum í Hagkaup og Fjarðakaup.

Þú þarft:

Fyrir ca 2….. nema þegar ég tými ekki að deila honum, sem er ca alltaf.

  • 400 gr frosin villt bláber frá Crops

  • 7-9 ferskar steinhreinsaðar döðlur

  • safi úr ½ sítrónu

  • 500 ml vatn

Aðferð:

  1. Steinhreinsið döðlurnar og komið fyrir í blandara ásamt bláberjunum, sítrónusafa og vatni.

  2. Blandið þar til kekkjalaust og hellið í glas og njótið.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Fylltar kartöflur með kaldri seitan karrýhræru