Fylltar kartöflur með kaldri seitan karrýhræru
Ég kynntist seitan í Svíþjóð og mér fannst það ótrúlega spennandi viðbót inní vegan matarmenningu. Nú hefur Ella Stína flutt inn lífrænt seitan fyrir okkur Íslendinga að kynnast. Þú getur notað það í raun hverskonar rétti í stað kjöts/kjötlíkis eða notað eins og þú myndir nota tófú eða baunir. Seitan er úr hveitiglúteni og er mjög próteinríkt.