NÝJUSTU UPPSKRIFTIR
Ég vil meina að mamma geri besta hummus veraldar og auðvitað er hann alltaf bestur þegar mamma mælir ekkert og fer eftir tilfinningu. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera mjúkan hummus eins og hennar. Á internetinu eru miljón tips og trix hvernig þú getur gert hummusinn sem mýkstan og það er allt frá því að taka hýðir af yfir í að setja klaka útí hummusinn. Góðu fréttirnar eru þær að aðferðirnar eru margar og ég mun ekki leggja það á ykkur að afhýða hverja einustu baun.
Vissir þú að Yi pin er með marinerað stinnt tófú sem hægt er að borða beint úr pakkanum? Þetta er algjört life-hack fyrir öll tilefni, já öll! Við útbjuggum okkur t.d. sparilegan tófubakka um áramótin en við gerðum okkur líka tófubakka sem millimál um daginn. Þannig að þetta er alveg brillant að eiga til í ísskápnum eða grípa úr búðinni ef þú átt vona á gestum eða langar að geta vippað upp snarlbakka á augabragði.
Bananaís er eitthvað sem við fáum aldrei nóg af. Hann er okkar go to ís en hann þarf ekkert alltaf að vera eins og ég lofa að þetta verður ekki síðasta útfærslan af honum hér.
Hér er útgáfa þar sem við notum hann eins og ís með dýfu þar sem við toppum hann með möndlu-döðlu smjörinu frá Rapunzel sem harðna
NÝJAR GREINAR
Róbert okkar á afmæli 27 júli, um hásumar þegar flestir eru í fríi. Litla óvissan sem fylgir sumarafmælum. Ætlum við að vera í borginni eða í útilegu? og svo hinn þátturinn, ætli einhver sé í borginni ef við höldum veislu? Við höfum verið ótrúlega heppin síðustu ár að yfirleitt komast mun fleiri en við þorum að vona okkur til mikillar gleði.
Í gær fékk ég niðurstöður úr jáeindaskannanum sem ég fór í í síðustu viku. Niðurstaðan var að meinið hefur minnkað og sömuleiðis virknin. Verkefnið heldur áfram EN þetta voru bestu fréttir sem ég gat nokkurn tíman óskað mér. Því nú er ég ekki lengur hrædd við meinið og ég veit hvernig ég klára það! Hversu langan tíma það tekur að verða laus við meinið veit ég ekki en það er aukaatriði.
Grænmetisæta frá fæðingu 🌱 Grænkeri 🌱
El upp tvo litla grænkera 👶 👶 🌱Uppskriftasmiður 🍲
Matarljósmyndun 📸
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að auglýsa á síðunni.
Follow me on Instagram!
Recipe inspiration & more!
Sign up with your email address to receive news and updates.











Á meðan það er norm að deyja úr krabbameini þá gagngrýnir enginn meðferðarúrræðin sem eru í boði.
Á meðan það er norm að deyja úr krabbameini þá gagngrýnir enginn skimunaraðferðir. Við jafnvel pressum á yfirvöld að skima okkur enn fyrr á ævinni án þess að spyrja hvort skanninn valdi okkur skaða.
Á meðan enginn fær skýringar á því hvernig krabbamein myndast, þrífst og vex þá verðum við alltaf hrædd við krabbamein.