Silkimjúkur hummus
Ég vil meina að mamma geri besta hummus veraldar og auðvitað er hann alltaf bestur þegar mamma mælir ekkert og fer eftir tilfinningu. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera mjúkan hummus eins og hennar. Á internetinu eru miljón tips og trix hvernig þú getur gert hummusinn sem mýkstan og það er allt frá því að taka hýðið af baununum yfir í að setja klaka útí hummusinn. Góðu fréttirnar eru þær að aðferðirnar eru margar og ég mun ekki leggja það á ykkur að afhýða hverja einustu baun.
Ég hef ekki prófað allar þessar aðferðir en hér er það sem gerir trikkið í mömmu humms, en það er að sjóða baunirnar frá grunni og nota soðið í hummusinn!
Ath. að ekki þarf að nota allar baunirnar í hummusinn ef soðinn er heill pakki en ég mæli með að setja restina inní ísskáp í box ásamt soðinu og þær geymast í allavega viku. Þá eru þær tilbúnar til að verða nýr hummusskammtur nokkrum dögum seinna eða tilbúnar í pottréttinn, í ofninn, á pönnuna eða í frystinn til að nota seinna.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
Til að sjóða baunirnar:
1 pakki lífrænar Rapunzel kjúklingabaunir (ósoðnar)
2 tsk matarsódi
vatn
Hummusinn:
500 gr soðnar kjúklingabaunir (ath þetta eru ekki allar baunirnar í pottinum)
1 1/2 dl kjúklingabaunasoð
1 1/2 dl tahini sem lekur
Safi úr 1 sítrónu (eða meira, svo gott að eiga til auka sítrónu)
2 hvítlauksrif
3 msk góð ólífuolía
1/2 tsk jurtasalt (jafnvel meira)
1/2-1 tsk cumin
Aðferð:
Byrjað er á að leggja baunirnar í bleyti í hreint vatn í 8klst og passa að vatnið flóti vel yfir.
Baunirnar ættu að hafa þennst vel út, hellið vatninu af og setjið nýtt vatn í pottinn og aftur, passið að vatnið fljóti vel yfir, setjið 2 tsk af matarsóda útí vatnið og sjóðið í 30- 40 mínútur á miðlungshita eða þar til baunirnar eru það mjúkar að hægt er að kremja þær milli fingranna.
Mælið 500 ml af baunum (án vökva) og setjið í blandara ásamt öllu nema soðinu. Hellið soðinu útí rólega á meðan blandarinn blandar á rólegum hraða. Þegar soðið er komið útí má blanda á fullum hraða og nota gjarnan sprota til að hræra í hummusnum á meðan þar til hann er orðinn silkimjúkur.
Smakkið til og bætið við salti eða sítrónu eftir þörf.
Verði ykkur að góðu.