Súkkulaði Creami með omega 3
Jæja Ninja Creami hefur tröllriðið internetinu og ég var svo heppin að fá svona græju í jólagjöf. Jólin höldum við alltaf hjá mömmu og pabba og vélin varð eftir þar og í mikilli notkun þar sem mamma hefur verið að græja ísa fyrir krakkana.
Síðan þá er liðið hálft ár og löngu kominn tími á að ég færi að prófa þessa græju.
Ég vissi lengi hvað ég myndi prófa fyrst og það var að gera einhverja útgáfu af uppáhalds chia búðingnum mínum og gera hann að ís. Þetta er próteinútgáfa af honum þar sem það er jú inn í Creami tískunni.
Einhverjir hlógu að mér á meðan ég brasaði við þessa tilraun en útkoman olli engum vonbrigðum!
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
400ml sæta möndlumjólk* - ég nota sæta heimagerða - uppskrift hér, sjá athugasemd ef þú vilt nota keypta.
7 ferskar steinhreinsaðar ferskar mjúkar döðlur
4 msk chia fræ
2 msk lífrænt kako frá Rapunzel
Væn klípa salt
1/2 scoopa hreint vegan súkkulaðiprótein sem þér finnst gott (má sleppa!)
Athugasemdir:
*Ef þú velur að nota keypta möndlumjólk myndi ég mæla með að bæta við ca ¼ tsk af sætu kryddi eins og kardimommu, kanil eða vanillu og 1 tsk af hlynsírópi eða auka döðlu.
Aðferð:
Setjið öll hráefni í blandara og maukið þar til þið sjáið ekki lengur chia fræjin. Við viljum þau maukuð fyrir réttu áferðina.
Hér er tilvalið að smakka blönduna og meta hvort þú viljir bæta við kryddum (kardimommu eða vanillu), meira kakói eða sæta það meira.
Hellið blöndunni í Ninja Creami form og þetta ætti að ná næstum því uppað Max strikinu og komið fyrir inní fyrsti.
Þegar blandan er orðin frosin má taka Ninja formið út úr frystinum og leyfa því að standa í að minnsta kosti 15 mínútur og setja svo tvisvar á "icecream" stillinguna.
Verði ykkur að góðu.