Yi pin tófu snarlbakki fyrir öll tilefni

Vissir þú að Yi pin er með marinerað stinnt tófú sem hægt er að borða beint úr pakkanum? Þetta er algjört life-hack fyrir öll tilefni, já öll! Við útbjuggum okkur t.d. sparilegan tófubakka um áramótin en við gerðum okkur líka tófubakka sem millimál um daginn. Þannig að þetta er alveg brillant að eiga til í ísskápnum eða grípa úr búðinni ef þú átt vona á gestum eða langar að geta vippað upp snarlbakka á augabragði.

Okkar bakki er yfirleitt samsettur úr tófúkubbum, reyktum og jurtamarineruðum, borið fram með ávöxtum, grænmeti, mögulega einhverri hræru og kexi. Þetta skorar bara öll stigin ef horft er til fjölbreytni og samsetningar skv. ráðleggingum. Við fáum ekki nóg, mæli með að prófa.

Færslan er unnin í samstarfi við OJK.

Þú þarft:

  • 1 pakki Yi Pin reykt tófú

  • 1 pakki Yi Pin jurta tófú “örter”

  • Hræru að eigin vali - t.d. hummus, kasjúsmurost, pestó… hér má hvað sem er sem passar við kex og grænmeti.

  • 1-2 papríku, mér finnst gaman að nota ólíka liti, t.d. gula og rauða

  • 1 gúrku

  • 10 stk súrar gúrkur

  • 2 epli

  • handfylli þurrkaðan mangó

  • kex að eigin vali, ég gerði þetta

  • Skreyta með káli og steinselju t.d.

Aðferð:

  1. Skerið tófúið í litla kubba, strimlið grænmetið og eplið. Raðið því svo ásamt restinni smekklega á bakka og berið fram.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Bananaís með carob og karamelluhjúp