Tikkamasala með linsum og blómkáli

Creamy linsu tikkamasala… ég elska ekki að enskusletta en stundum eru ensku orðin bara aðeins meira lýsandi. “Rjómakennt” er sennilega rétta orðið en einhvernegin finnst mér það ekki alltaf passa fyrir rétt úr jurtaríkinu ef það meikar sens…

Nóg um það! Hér er á ferðinni bragðmikill og fljótlegur Tikkamasala pottréttur með linsum sem maður græjar í einum potti og getur stjórnarð áferðinni alveg eins og maður vill. Maukað, hálfmaukað eða ekki maukað? Frábær með hrísgrjónum sem einföld hversdags máltíð með lítilli fyrirhöfn.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 msk olía til steikingar

  • 2 gulir laukar

  • 2 þumlar engifer (ca 2 msk smátt skorið engifer)

  • 4 hvítlauksrif

  • 1 lárviðarlauf

  • 2 msk tikkamasala kryddblanda

  • 1 stór flaska tómatpassata, ca 680ml.

  • 2 dl lífrænar linsur frá Rapunzel

  • 1 msk gerlaus jurtakraftur frá Rapunzel

  • 1 dós kókosmjólk

  • ca 700 ml vatn - fyllið tómatpassataflöskuna og náið restinni úr henni með vatninu

  • 1/2 meðalstór blómkálshaus

Meðlæti:

  • Basmati hrísgrjón

  • kóreander

Aðferð:

  1. Byrjið á að steikja smátt skorinn lauk, hvítlauk, engifer í olíu.

  2. Bætið svo við kryddum og vökva og sjóðið þar til linsurnar eru orðnar mjúkar.

    Maukað, hálfmaukað eða ekki maukað?

  3. Ef þú kýst að mauka réttinn alveg eða sleppa því að mauka hann, þá má setja blómkálið útí í skrefi tvö, en það getur líka verið skemmtilegt að bæta blómkálinu við eftir að búið er að mauka mjúkar linsurnar við vökvann og leyfa blómkálinu að njóta sín í bitum með mjúkri tikkamasala linsusósunni.

  4. Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum og berið fram með linsuréttinum og toppið með kóreander.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Tamari ristuð sólblómafræ