Tamari ristuð sólblómafræ

Tamari ristuð sólblómafræ eru hluti af minni nostalgíu en mamma vann á tímabili á veitingastaðnum “Á næstu grösum” þar sem alltaf voru tamari ristuð sólblómafræ í boði til að strá yfir matinn. Þetta voru fræin sem hægt var að sækja sér meira af og fræin sem maður fékk sér smá í lófann og beint uppí munn,, æj þið vitið.

Bara þetta litla einfalda meðlæti setti svo mikinn svip á máltíðina og passaði með öllu, útá pottréttinn, hrísgrjónin, ofaná smurða brauðið eða útá súpuna…. eða beint í lófann og uppí munn.

Að sjálfsögðu voru fræin innleidd á heimilið þar sem ég ólst upp og enn þann dag í dag, mig langar að segja tæpum 30 árum seinna, græjar mamma reglulega tamari ristuð sólblómafræ til að strá yfir þann mat sem er í boði.

Það var við hæfi og einstaklega skemmtilegt að mynda sólblómafræin í náttúrulegri birtu frá sól, vona að þið prófið.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi sem flytja inn fyrir okkur lífræn sólblómafræ.

Þú þarft:

  • 2 dl lífræn sólblómafræ frá Rapunzel

  • 1-1 1/2 msk tamari sósa eða glútenlaus soja sósa.

Aðferð:

  1. Ristið sólblómafræin á vægum hita á pönnu í kannski 1-3 mínútur og hrærið stöðugt.

  2. Bætið tamari útá fræin og hreyfið vel við fræjunum svo þau nái að veltast uppúr tamarí sósunni áður en hún þornar upp.

Njótið með nánast hverju sem er. Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Myntu smoothie með súkkulaðibitum og hampfræjum