Kasjú “sýrður rjómi”
Sósur!
“Hvernig sósa er þetta?” er sennilega ein af algengustu spurningunum sem ég fæ. Ég vil meina að sósan sé lykilatriði í öllum réttum og ég er að átta mig á að ég hef deilt alltof fáum sósu uppskriftum með ykkur.
Hér er ein sem er ótrúlega einföld og kunnugleg fyrir flestum þ.e.a.s engin framandi innihaldsefni og nafnið bendir til þess hvernig má nota hana.
Passar með flest öllu og algjör “go to” sósa hjá okkur ef við gerum okkur burritoskál, einhverskonar taco eða vefju. Hún er líka góð sem ídífa fyrir grænmetisstrimla eða í raun bara frábær staðgengill fyrir hefðbundinn sýrðan rjóma. Svo er að sjálfsögðu hægt að nota hana sem sósugrunn ef þú vilt krydda hana til með laukdufti eða chili fyrir annarskonar fíling.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
2 dl kasjúhnetur, ég nota lífrænar frá Rapunzel
2 dl vatn
1 sítróna, safinn
1 hvítlauksrif
1/4 dl jurtasalt
Aðferð:
Byrjað er á því að leggja kasjúhneturnar í bleyti, 4-8 klst ef kalt vatn, 10-15 mín ef heitt vatn. Það er hægt að sleppa þessu en þá verður liturinn mögulega ekki alveg jafn hvítur og fallegur og sósan verður þykkari.
Vatninu helt af hnetunum og þeim komið fyrir í lítinn blandara/nutribullet/töfrasprotaglas ásamt nýju fersku vatni, hvítlauksrifi, sítrónusafa og salti.
Blanda þar til áferðin er silkimjúk. Smakkið til og bætið við sítrónu eða salti eftir smekk.
Berið fram með …. öllu sem kallar á hvíta ferska sósu.
Verði ykkur að góðu.