Tófú stroganoff

Stroganoff… er það eitthvað sem er þekkt hér á Íslandi? Þegar ég bjó í Svíþjóð kynntist ég Stroganoff, þetta virtist rótgróið í Svíjann. Ég man ekki eftir að hafa heyrt um þetta áður en ég flutti út, en ég er svosem alin upp sem grænmetisæta og lítið um einhverja klassíska rétti heima. Hefðbundið stroganoff er gert með kjöti en reykta sænska tófúið frá Yi Pin er algjörlega brilliant til að ná rétta bragðinu og áferðinni til að ná fram “nostalgíunni”. Já og ég get sagt það því maðurinn minn er alinn upp í Svíþjóð og ánægjan leyndi sér ekki.

Færslan er unnin í samstarfi við OJK.

Þú þarft:

  • 2 laukar

  • 2 hvítlauksrif

  • 2 kubbar reikt yipin tófú

  • 2 tsk papríkuduft

  • 1 papríka

  • 1 krukka biona tómatpúrra

  • 1 dós kókosmjólk

  • 1-2 msk tamari (fer eftir smakk en tamari er saltið í réttinum)

  • 1/4 tsk reykt papríka (valfrjálst en ef þú elskar reykta bragðiði þá mæli ég með því)

  • 1/2 brokkolíhaus (valfrjálst)

  • salt

Meðlæti:

  • Hrísgrjón

Aðferð:

  1. Byrjið á að steikja lauk og hvítlauk í olíu.

  2. Bætið tómatpúrru, tamari, papríkukryddi og tófúinu útí og hræra vel.

  3. Kókosmjólkin fer svo útí ásamt skorinni papríku og leyfið réttinum að malla á miðlungshita í ágætan tíma, lágmark 15 min því við viljum að tófúið nái að draga í sig hin brögðin.

  4. Toppa með steinselju og bera fram með hrísgrjónum.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Silkimjúkur hummus