Hampfræmjólk

Heimatilbúin plöntumjólk sem er rík af omega 3 og þú græjar á 30 sek án subbuskaps eða síjupoka.

Hampfræmjólk! Þetta er oft mín “go-to” mjólk í smoothie-inn þegar ég á ekki aðra mjólk, og líka bara stundum þó ég eigi aðra mjólk til. Hún er ótrúlega fljótleg og bústar smoothie-inn af omega 3 fitursýrum. Afgangsmjólkina er svo tilvalið að nýta útá frosin bláber, útá múslíið, útí te-ið eða já á allt sem kallar á sæta, kremaða mjólk með skemmtilegum hnetulíkum keim.

Ath. þar sem við síjum ekki hrat burt þá skilur hún sig aðeins inní ísskáp svo hrærið eða hristið hana til fyrir notkun. Hún er best fersk en geymist í 2-3 daga í ísskáp.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi en það gladdi mig mjög að sjá hampfræ bætast við í Rapunzel fjölskylduna á Íslandi og ég hlakka til að deila enn fleiri uppskriftum með þessum mögnuðu fræjum.

Þú þarft:

  • 1 dl hampfræ frá Rapunzel

  • 1/4 tsk vanilla (ég nota duftið frá Rapunzel)

  • 2 ferskar steinhreinsaðar döðlur

  • 3 dl vatn

    blanda og þarf ekki að síja frá

Aðferð:

  1. Öllu er komið fyrir í blandara og blandað þar til áferðin er slétt og útlitið líkist mjólk.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Dubaí súkkulaði í hollari útgáfu