Dubaí súkkulaði í hollari útgáfu

Dubaí súkkulaði átti internetið á liðnu ári og varð svo vinsælt að litla Ísland fór að selja það í almennum stórmörkuðum. Trendin hafa svo sannarlega áhrif og ég verð alveg jafn mikið fyrir áhrifum og aðrir. Ég ákvað að prófa að gera útgáfu sem er sykur- og glútenlaus sem tónar við minn lífstíl.

Þið megið dæma um það hvort hún líkist hinni upprunalegu eitthvað yfir höfuð þar sem ég sjálf hef ekki smakkað hana haha en ég get allavega lofað ykkur að þessi er trufluð…. pistasíusmjör, kókos og súkkulaði, þetta er kombó sem getur ekki klikkað.

Ég gerði bæði plötur og kúlur, mér fannst ég verða að gera plötur þar sem upprunalega súkkulaðið er á plötuformi en ég verð að viðurkenna að pistasíufyllingin nýtur sín enn betur á kúluformi. Hvortveggja sló samt í gegn hjá okkur hér heima en óháður aðili fékk að smakka og kaus kúlur sem winner.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 200 gr pistasíuhnetur

  • 1/2-1 tsk lífræn kókosolía

  • 1 hnífsoddur gróft salt

  • rúm 1/4 tsk vanilluduft, ég nota lífrænt frá Rapunzel

  • 2 dl ferskar steinhreinsaðar döðlur

  • 1 msk lífrænt hlynsíróp frá t.d Rapunzel

  • 1 1/2 dl lífrænt kókosmjöl frá Rapunzel

  • 150 gr dökkt súkkulaði (70-100%)

Aðferð:

  1. Byrjað er á að búa til pistasíusmjör. Komið pistasíuhnetunum fyrir í matvinnsluvél og blandið þar til pistasíuhneturnar eru orðnar að mjög fínu kurli, bætið þá salti, vanilludufti og kókosolíu útí og blandið þar til þið fáið pistasíusmjör. Þið gætuð þurft að taka lokið af vélinni nokkrum sinnum til að skafa meðfram hliðum.

  2. Þegar áferðin er orðin að smyrju má bæta við döðlum og sætu (ef kosið). Blandið þar til áferðin er nokkuð jöfn og þétt. Það ætti að myndast klístraður þéttur klumpur.

  3. Hitið kókosinn á pönnu á miðlungshita og hrærið stöðugt í þar til kókosinn tekur á sig gulbrúnan lit.

  4. Bætið kókosnum við pistasíudeigið og blandið í síðasta sinn.

  5. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.

  6. Rúllaðu deiginu uppí kúlur og veltu í súkkulaðið EÐA gerðu Dubaí súkkulaði með því að hella þunnu lagi af súkkulaðið í form, kæla, fylla svo með þykku lagi af “dubaí” pistasíudeiginu, og toppa aftur með súkkulaði.

Geymist í fyrsti, mæli með að leyfa kúlunum aðeins að “þiðna” svo fyllingin nái að mýkjast í kannski 1-2 mínútur áður en borin fram.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Sykurlausar súkkulaðiplötur