Myntu smoothie með súkkulaðibitum og hampfræjum
Smoothieinn sem varð minn uppáhalds á meðan við vorum útí á Tenerife. Ferskur, svalandi og nærandi á saman tíma og hann smakkast eins og eftirréttur. Við köllum hann bara ís hér heima.
Ég byrja á að gera mjólkurgrunn úr hampfræjum og vatni sem gerir það að verkum að lítill blandari mun ráða við að blanda frosnu ávöxtunum. Hampfræ eru ekki bara full af omega 3 fitusýrum heldur gefa líka skemmilegan mildan hnetukeim.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
1/2 dl lífræn hampfræ frá Rapunzel
1 dl vatn
smá lífrænt vanilluduft, ég nota Rapunzel
200 gr ananas
150 gr mangó
1 frosinn banani
3-4 steinhreinsaðar döðlur
Handfylli fersk mynta
Handfylli klettasalat (já! þetta sem er smá spicy)
1 msk smátt saxað súkkulaði (70-100%)
Aðferð:
Byrjið á að setja hampfræ, vatn og vanillu í lítið blenderílát og blandið þar til orðið að mjólk.
Bætið nú hinum hráefnunum útí, öllu nema súkkulaðinu, og blandið þar til þið fáið jafna þykka áferð. Bætið við vökva ef blandarinn erfiðar en reynið að komast upp með að sleppa því fyrir “ís” legri áferð.
Bætið nú söxuðu súkkulaði útí og hrærið með skeið áður en þið njótið.
Verði ykkur að góðu.