Bananaís með carob og karamelluhjúp
Bananaís er eitthvað sem við fáum aldrei nóg af. Hann er okkar “go to” ís en hann þarf ekkert alltaf að vera eins! Ég lofa að þetta verður ekki síðasta útfærslan af honum hér.
Hér er útgáfa þar sem við notum hann eins og ís með dýfu þar sem við toppum hann með möndlu-döðlu smjörinu frá Rapunzel sem harðnar svo skemmtilega… smyrjan kallast allskonar nöfnum hér heima og heitir þetta stundum hnetusmjörið sem harðnar, stundum karamellusmjörið eða karamelludýfa.
Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.
Þú þarft:
8 frosnir bananar
4 döðlur
1/2 tsk kardimomma
1 tsk maca (valfrjálst en ég elska það)
1-2 dl Vökvi til að auðvelda blandaranum, vatn, möndlumjólk eða lakkríste virkar vel
Til að toppa með:
Carob, frá Rapunzel
Möndlu-döðlu-kókossmjörinu frá Rapunzel..
… sem harðnar og verður eins og ís með dýfu!
Aðferð:
Skerið frosnu bananana í minni bita og komið fyrir í öflugum blandara eða matvinnsluvél, bætið útí kryddum og vökva og blandið þar til áferðin er orðin eins og á ís.
Berið fram og toppið með carobi og möndlu-döðlusmjörinu sem mun breytast í dýfu.
*Gott er að nota sprota ef notast er við blender til að þjappa og hræra til í bönunum á meðan blandað er, til að komast upp með sem minnstan vökva. Ef notast er við matvinnsluvél er gott að stoppa hana af og til og losa um það sem festist í hliðunum á könnunni.
Verði ykkur að góðu.