Kókos ”sprinkle” eða Partýkókos

“Sprinkles” er oft það sem gleður augað og gerir kræsingar meira spennandi í augum barna. Eins og flestir sem hafa fylgt mér lengi vita, þá kýs ég yfirleitt sykurlausar eða sykurminni kræsingar fyrir krakkana mína en því eldri sem þau verða finn ég að það verður meiri áskorun.

Hollu kókoskúlurnar á Lemon náðu svo sannarlega athygli barnanna minna en þeim er rúllað uppúr lituðum kókos svo ég varð að prófa mig áfram heima. Börnin urðu heldur betur heilluð og enn skemmtilegra að þau gátu tekið þátt í að lita kókosinn.

Kókosinn geturu notað nákvæmlega eins og þú myndir nota annað kökuskraut, en við höfum rúllað kókoskúlum uppúr kókosnum, við höfum stráð honum yfir bananaís og sett útá pönnukökur. Kannski skemmtilegt skraut á smákökurnar?

Hægt er að lita kókosinn og geyma í krukku í margar vikur svo auðvelt er að eiga hann til og grípa í við óvænt tilefni.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi. Ég nota kókosinn frá Rapunzel þar sem hann er lífrænn og skemmtilega fíngerður.

Þú þarft:

  • 1 1/4 dl lífrænn kókos frá Rapunzel

  • 1/4 tsk Barley grass juice powder eða græna spírulínu - Grænn

  • 1/4 tsk Bláa spírulínu - Blár

  • 1/4 tsk Túrmerik - Gulur

  • 1/2 tsk Pink pitaya duft /drekaávaxta duft - bleikur

Aðferð:

  1. Skiptu upp kókosnum í 4 mismunandi skálar með 1/2 dl í einni skál og 1/4 dl í hinum þremur.

  2. Bættu 1/2 tsk af bleiku pitaya dufti í skálina með 1/2 dl af kókos og svo hina litina í hinar skálarnar (einn lit í hverja skál).

  3. Hrærið litaduftinu vel saman við kókosinn og þá er þetta tilbúið. Þú getur valið að halda litunum aðskildum en okkur finnst skemmtilegt að blanda þeim svo öllum saman í litríkt “sprinkle” í krukku.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Tófú stroganoff