Sumarsalat með kasjúosti, vatnsmelónu og sítrónudressingu

Þetta hefur verið mitt uppáhalds sumarsalat síðan ég smakkaði svona salat á Raw veitingastað í Gautaborg þegar ég bjó þar. Ég man að ég gat ekki hætt að hugsa um þetta ferska salat sem þau buðu uppá og ég bara varð að endurskapa það í eldhúsinu mínu stax sömu vikuna. Þetta voru mín fyrstu kynni af kasjúosti og hann gefur þessu létta og ferska salati þessa extra fyllingu og skemmtilegan karakter.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • Íssalat

  • Spínatkál

  • Rauðlauk

  • Vatnsmelónu

  • Avocado

  • Kokteiltómata

Og afþví ég vil helst bústa allar máltíðir með spírum þá toppa ég salatið með:

  • Brokkólí- & smáraspírunum frá eco spíru.

Kasjúostur

  • 2 dl lífrænar kasjúhnetur (ég nota þessar brotnu frá Rapunzel),

    ágætt að leggja þær í bleyti áður, 2 tíma eða lengur, en þú kemst líka upp með styttri tíma ef vatnið er heitt

  • 1 dl næringarger

  • Jurtasalt eftir smekk, kasjúhneturnar eru svolítið sætar svo mér finnst gott að bæta við salti aukalega

Sítrónudressing

  • 1 lífræn sítróna, safinn og hýðið

  • 2 msk ólífuolía*

  • ¼ tsk jurtasalt

*hægt er að nota bragðminni jurtaolíu og miða þá við jafn mikið magn af sítrónusafanum og olíunni, þá gætiru viljað nota af salti.

Aðferð:

  1. Byrjið á að leggjá kasjúhneturnar í bleyti, setjið svo kasjúhneturnar ásamt næringageri í matvinnsluvél, nutribullet eða eitthvað svipað, mér finnst gott að nota lítið blenderunit. Smakkið til og bætið við salti eftir smekk.

  2. Útbúið dressinguna með því að rífa hýðið utan af lífrænni sítrónu, kreystið svo safann úr hýðislausu sítrónunni og komið fyrir í lítinn blender / hátt glas ef notaður er töfrasproti, og bætið olíu og salti við og blandið.

  3. Skolið og skerið grænmetið og komið fyrir í skál eða á diski og berið fram með kasjúosti og sítrónudressingu.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Grænt spírusalat með sætri tahini og miso dressingu

Next
Next

Bleik dreka skál