Linsupönnukökur

Linsupönnukökur, -vefjur, eða -flatbrauð? Hér erum við allavega með ótrúlega einfalda uppskrift af glúteinlausum pönnukökum með lauk og svörtu salti. Hægt er að nota þær sem vefjur og setja eitthvað inní, bera fram sem meðlætisbrauð með mat eða bara sem pönnukökur til að dippa í sósu eða chutney. Vefjurnar eru bæði ríkar af plöntupróteini og trefjum, er það ekki það sem allir eru sjúkir í ? ;)

Á myndinni sjáiði pönnukökurnar bornar fram ásamt chilimauki og sumac lauk. Einhverskonar jógúrtsósa og chutney væri líka geggjað með.

Ath. linsurnar þurfa að liggja í bleyti fyrir bestu útkomuna svo gerið ráð fyrir undirbúningstíma, lágmark 4 klst. Hægt að leggja þær í bleyti kvöldið áður eða um morguninn sama dag og þú vilt útbúa þær.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 2 dl rauðar lífrænar linsur frá Rapunzel

  • 1 & 1/4 tsk laukduft

  • 1 tsk huskduft

  • 2 dl vatn

  • 1 & 1/4 tsk svart salt

  • 1/2 smátt skorinn gulur laukur

  • 1 tsk ólífuolía til steikingar

Aðferð:

  1. Byrjað er á því að skola linsurnar. Setjið skolaðar linsur í skál með ca tvöföldu magni af vatni og leyfið að liggja í bleyti í amk 4klst.

  2. Hellið svo vatninu af linsunum, það má skola þær léttilega, og setjið þær í blandara ásamt öllu nema smátt skorna lauknum og olíunni.

  3. Bætið smátt skorna lauknum útí deigið og hrærið með t.d. gaffli.

  4. Hitið pönnu og setjið ólífuolíu á pönnuna. Nóg er að setja olíu fyrir fyrstu pönnukökuna.

  5. Hellið eins og 3/4 dl af linsudeiginu á pönnuna og dreifið úr því svo lagið verði frekar þunnt og jafnt. Leyfið henni að bakast í ca 2 mínútur á meðalháum hita, eða þar til hún losnar auðveldlega af pönnunni og snúið við til að baka hina hliðina.

*Ef deigið þykknar á meðan þið eruð að baka pönnukökurnar er hægt að bæta pínu vatni útí deigið og þynna.

Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Ferskt kartöflusalat með sinnepssósu