Bleikur hvítbaunahummus með rauðrófu og capers

Bleikur hummus úr hvítum baunum, með rauðrófu og capers borinn fram með hinum litum regnbogans.

Hér erum við með ótrúlega ferskan rauðrófuhummus með capers. Já eða baunahræru… tæknilega séð er þetta ekki hummus þar sem “hummus” þýðir “kjúklingabaunir” en hér nota ég hvítar cannellini baunir. Ég leyfi mér þó að kalla þessa baunahræru hummus þar sem það hljómar betur og þennan hvítbaunahummus má bera fram eins og hefðbundin hummus. Ég elska hvað rauðrófan gerir hann fallegan á litinn en tekur ekki yfir bragðið nema gefur skemmtilega sætan keim. Capersinn er svo aðeins meira áberandi í bragðinu. Það er líka skemmtileg tilbreyting að prófa sig áfram með hvítar baunir en þær eru mun mýkri en kjúklingabaunir svo þú þarf ekki að beita neinum trixum eða eiga flóknar græjur til að fá áferðina silkimjúka.

Þessi fallega bleiki hummus passar æðislega vel með grænmetisstrimlum og steiktum tortillabútum/kexi, útá pastaskrúfur ásamt salati og súrkáli…. eða bara eins og þú kýst að borða hummus.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 soðin rauðrófa

  • 1 dós lífrænar cannellini baunir frá Rapunzel

  • 2 msk ljóst tahini

  • 1/2 dl capers

  • 1 hvítlauksrif

  • safi úr 1/2 sítrónu

Aðferð:

  1. Byrjið á að skræla rauðrófuna, skera í litla búta og sjóða. Það tekur um 30 mínútur. Sigtið vatnið frá og setjið rauðrófuna til hliðar. Einnig er hægt að kaupa forsoðna rauðrófu.

  2. Hellið vökvanum af baununum (*hægt er að nota hluta af vökvanum til að þynna hummusinn svo ekki hella honum í vaskinn alveg strax).

  3. Komið svo öllu fyrir í blender/matvinnsluvél/nutribullet og blandið öllu saman. Það er jafnvel hægt að nota töfrasprota. Ef áferðin þarf beiri vökva er hægt að bæta við örlitlu vatni eða *vökva úr baunadósinni.

  4. Berið fram með því sem þér dettur í hug.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Hrákúlur með kakó og appelsínubragði

Next
Next

Ferskpressaður safi með rauðrófu og fennel