Pekanhnetukúlur með möndlusmjöri og kanil

Ég er yfirleitt þessi ofurskynsama týpa sem tekur sér langan tíma í að taka “stórar” ákvarðanir…. Ég hef svo sannarlega fengið hressliega áminningu um að lífið er núna og ég ákvað til tilbreytingar að vera frekar spontant (og mögulega óskynsöm, það á eftir að koma í ljós seinna) og keypti tæplega 30 ára gamlan húsbíl. Okkur hefur lengi dreymt um að ferðast um á “van” eða einhverskonar húsbíl um Svíþjóð svo þetta var ekki alveg útí bláinn hugmynd og vonandi fyrsta skrefið í að láta drauminn rætast. Húsbíll hefur þann kost að hægt er að taka “eldhúsið” með sér á ferðalagið sem er það sem mér finnst svo heillandi og er akkurat það sem ég gerði í sumar og fékk matvinnsluvélin mín að koma með. Ég fyllti skápana af þeim þurrvörum sem bjóða uppá sem flesta möguleika í matargerð og að sjálfsögðu hráefni sem bauð uppá kúlugerð. Þessi uppskrift varð til í húsbílnum og varð alveg óvart galið góð, sú besta sem Raggi hafði smakkað svo mig langar endilega að deila henni með ykkur. Endilega prófiði og segjið mér hvað ykkur finnst! :D

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 125gr pekanhnetur

  • 1 dl (ca 30gr) kókos og auka til að rúlla uppúr

  • 1 msk kakó

  • 1 tsk ceylon kanill

  • 12-14 ferskar steinhreinsaðar döðlur (um 130 gr)

  • 3-4 msk lífrænt möndlusmjör frá Rapunzel

  • hnífsoddur salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja allt þurrefni í matvinnsuvél og malið í matvinnsluvél í svolitla stund þar til orðið að nokkuð fínu kurli.

  2. Bætið svo við döðlum (ath það þarf að taka steinninn úr) og möndlusmjöri.

  3. Takið ca 2 tsk af “deiginu” og kremjið saman og mótið kúlu.

  4. Veltið kúlunum uppúr kókos og njótið.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Ferskt og litríkt salat með appelsínu- & engiferdressingu

Next
Next

Gazpacho