Mexíkóskt quinoa

Quinoa er sennilega uppáhalds „kornið“ mitt. Tæknilegar séð er það reyndar ekki korn heldur fræ. Quinoa er glútenlaust, próteinríkt og inniheldur trefjar. Það hefur nokkuð hlutlaust bragð sem bíður uppá allskonar möguleika fyrir kryddskúffuna.

Hér höfum við mexíkó quinoa sem er ótrúlega gott sem meðlæti, sem mexíkó salatgrunnur, sem fylling inní burritovefjuna eða t.d. til að toppa bakaða sæta kartöflu. Quinoað má borða bæði heitt og kalt sem getur verið hentugt fyrir nestið eða flótlega afgangamáltíð. Þessi hefur verið í uppáhaldið hjá okkur lengi, bæði hjá börnum og fullorðnum.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 1 msk ólífuolía (má sleppa)

  • 4 msk tómatpúrra

  • 2 msk jurtakraftur (ég nota gerlausan frá Rapunzel)

  • 2 tsk malaður kóreander

  • 2 tsk broddkúmen (malað cumin)

  • 4 tsk papríkuduft

  • 1 tsk laukduft

  • 1/2 tsk cayannepipar

  • 4 dl lífrænt quinoa frá Rapunzel

  • 8,5 dl vatn

  • 1 dós gular baunir, ég nota lífrænar frá Rapunzel

  • 1 dós soðnar lífrænar nýrnabaunir, t.d. Rapunzel

Gott með:

  • Avocado / guacamole

  • Kóreander

  • Chiliflögur

  • Salatblöð

  • Ferskir kokteiltómatar

  • Rauðlaukur

  • Sýrður rjómi (hafra eða kasjú)

  • lime

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja olíu, vatn, tómatpúrru, jurtakraft og krydd í pott og náið upp suðu og hrærið svo tómatpúrran leysist örugglega upp.

  2. Bætið quinoanu útí pottinn og sjóðið með loki á vægum hita í 10-12 mínútur. Ath tómatpúrrann vill setjast á botninn svo það er mikilvægt að hræra í pottinum reglulega annars getur quinoað brunnið við í botninum.

  3. Þegar quinoað hefur soðið í u.m.þ.b 9 mínútur eða þegar quinoað hefur ekki náð að draga allan vökvann í sig má bæta baununum útí og hræra vel. Setjið lokið aftur á bíðið þar til quinoað dragi restina af vökvanum í sig. Einnig er hægt að bíða eftir að quinoað sé fulleldað og bæta baununum þá útí og leyfa þeim að hitna með lokið á í nokkrar mínútur (ekki á hellunni).

Hvernig myndir þú bera mexíkóskt quinoa fram? Endilega sýnið mér ykkar útfærslu ef þið prófið. Verði ykkur að góðu.

Next
Next

Ávaxtasafapinnar