Kjúklingabaunir í tikkamasala sósu

Ótrúlega einfaldur og fljótlegur kjúklingabaunaréttur í tikkamasalasósu. Borinn fram með vegan raitu og hýðishrísgrjónum.

Færslan er unnin í samstarfi við gerum daginn girnilegan.

Þú þarft:

  • Olía til steikingar

  • 1 geiralaus hvítlaukur

  • 1 gulur laukur

  • 100gr tómatpúrra

  • 3 dósir kjúklingabaunir

  • 2 msk tikkamasala spice paste frá Pataks

  • 1 dl vatn

  • 3 dl oatly jógúrt

  • salta til eftir smekk

Vegan raita/ jógúrtsósa

  • 2 dl hrein oatly jógúrt

  • Safi úr ½ lífrænni sítrónu (þær eru minni)

  • 2 hvítlauksrif

  • Smá salt

Aðferð:

  1. Steikið lauk, hvítlauk á pönnu í smá olíu þar til hann mýkist og setjið þá tikkamasala paste, tómatpúrru og vatn útá pönnuna og hrærið léttilega þar til áferðin er orðin jöfn.

  2. Skolið baunirnar og bætið þeim útá ásamt jógúrtinni. Leyfið þessu að malla í smá stund og smakkið til og saltið eftir smekk.

  3. Útbúið raituna/jógúrtsósuna með því að blanda saman jógúrtinni, safa úr sítrónu, rifnum hvítlaukrifjum og smá salti.

  4. Berið fram með hýðishrísgrjónum, kóreander og vegan raitu.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Lífrænt ofurfljótlegt pönnumúslí

Next
Next

Ferskt Thai tófú salat með uppáhalds miso dressingunni