Hér er á ferð ótrúlega einfalt hnetunammi eða orkukubbar, sem er einstaklega fljótlegt að skella í þar sem maður malar hráefnið bara niður og klessir svo í form og sker svo í kubba eftir kælingu. Kakósmjörið gerir það að verkum að þeir harðna í frysti og tolla saman. Ég viðurkenni að í hvert sinn sem ég hef gert þá hugsa ég alltaf um það hversu skemmtilegir þeir væru á svona bakka með berjum, kókoskúlum og kannski kasjúosti og grænmeti, þið vitið á svona partýbakka. Ég hef aldrei náð svo langt þar sem þeir hverfa áður en ég næ að gera ostinn eða kaupa berin en þetta er allavega hugmynd svona ef einhver er að fara að halda boð.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 200 gr poki lífrænar heslihnetur frá Rapunzel, ca 3 dl

  • 1 dl pekanhnetur

  • 10 ferskar steinhreinsaðar döðlur

  • 1 msk carob (hægt að sleppa eða skipta út fyrir kakó)

  • 1 msk kakó

  • 2 msk bráðið kakósmjör, ég nota lífrænt frá Rapunzel

  • 1 msk hnetusmjör, fyrir þá sem elska hnetusmjör er vissulega hægt að setja meira, ég nota lífrænt frá Rapunzel og það er vissulega hægt að skipta hnetusmjöri út fyrir möndlusmjör eða annarskonar trjáhnetusmjör.

Aðferð:

  1. Eftir að búið er að steinhreinsa dölurnar er öllu skellt í matvinnsluvél og malað niður í kurl. psst.. þetta klístraða kurl er líka hægt að nota sem múslíkurl útá smoothie skál….

  2. Kurlinu er svo komið fyrir í ílát/form og þjappað vel svo það myndi þéttan massa. Ég nota stærri týpuna af glernestisboxum frá ikea. Ágætt er að setja bökunarpappír í botinn svo auðveldara sé að ná namminu úr forminu.

  3. Skellið forminu inní frysti og æfið þolinmæðina. Nammið er tilbúið eftir ca. 1 klst.

  4. Takið útúr frysti og skerið í bita og njótið. Geymist best í frysti.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Hratkex … fyrir alla þá sem spyrja mig að því hvað ég geri úr djúshratinu

Next
Next

Ferskt og litríkt salat með appelsínu- & engiferdressingu