Haustlegur pottréttur með grænum linsum og kartöflum

Árstíðin sem kallar á matmiklar súpur og pottrétti er gengin í garð. Þetta má kannski kalla súpu en því lengur sem hún stendur í pottinum verður hún að pottrétti þar sem linsurnar halda áfram að draga í sig vökvann. Grænar linsur eru ótrúlega skemmtilegar því þær halda forminu sínu og verða ekki að mauki. Þær er því líka hægt að nota í köld salöt.

Hér erum við með algjöran hversdagspottrétt og algjör bónus að hráefnið er ódýrt, mettandi og að sjálfsögðu nærandi sem kannski skiptir öllu máli. Það sem skemmtilegra er að grunnuppskriftin býður uppá breytilega krydd möguleika. Hér erum við með sæt indversk krydd en kartöflur, hvítlaukur og steinselja passa líka einstaklega vel við grísk eða ítölsk krydd svo ég mæli með að prófa sig áfram eftir skapi dagsins og leika sér aðeins með krydd.

Er uppskriftin barnvæn? Þegar það kemur að mat þá er “barnvænt” mjög afstætt hugtak. Á mínu heimili er hún það, hver veit nema hún sé það líka á þínu heimili.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi. Grænu lífrænu linsurnar frá Rapunzel halda formi sínu við suðu svo þær eru líka frábærar í t.d. kalt linsusalat, einnig er hægt að spíra þær!

Þú þarft:

Grunnur (fyrir 4):

  • 1 msk ólífuolía

  • 1 tsk broddkúmen

  • 2 lárviðarlauf

  • 1 gulur laukur

  • 2-3 hvítlauksrif

  • 600 gr kartöflur

  • 2 msk jurtakraftur, ég nota lífrænan og gerlausan frá Rapunzel

  • 1,6 lítrar vatn

  • 3 dl lífrænar grænar linsur frá Rapunzel

  • 100 gr spínat

  • 100 gr grænkál

  • 30 gr steinselja

  • jurtasalt

Krydd:

  • 1,5 tsk garamasala

  • 1 tsk indversk krarrý (blanda frá Kryddhúsinu)

  • 1/8 tsk kanill

Hér nota ég sæt indversk krydd en þessi grunnuppskrift býður uppá allskonar möguleika á kryddum en grísk krydd passa t.d. líka vel við réttinn.

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita olíu í potti við vægan hita og bætið svo broddkúmeni og lárviðarlaufi útí.

  2. Þegar broddkúmenið byrjar aðeins að skoppa til í pottinum er söxuðum lauknum, rifnum hvítlauk og smátt skornum kartöflum bætt útí pottinn.

  3. Hrærið stanslaust í pottinum í smá stund.

  4. Bætið vatninu, linsunum, jurtakrafti og kryddum* í pottinn og leyfið að malla á miðlungshita í ca 20 mínútur eða þar til linsurnar og kartöflurnar eru orðnar mjúkar.

    *Einnig er hægt að bíða með kryddin þar til eftir þetta skref ef þú vilt smakka og meta hvort þú viljir prófa þig áfram með önnur krydd.

  5. Bætið nú smátt skornu grænkáli, spínati og steinselju útí pottinn og leyfið því að hitna og mýkjast í 1-2 mínútur.

  6. Berið fram og njótið.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Rauðrófusalat með próteinspírum og ristuðum sesamfræjum

Next
Next

Bleik engiferskot