Hið víðfræga “Date bark” með quinoa poppi og tahini

Það er skemmtilegt að sjá hvað sumar matarhugmyndir fara á flug um allt internetið. Þetta döðlunammi er einmitt ein þeirra. Aðferðin er algjörlega brillant, svo einföld og fljótleg svo ég skil vel að hún hafi farið viral en svo eru möguleikarnir við samsetninguna endalausir. Ég er tahini unnandi og elska hvernig poppað quinoa gefur skemmtilega áferð, crunch og smá hnetulegan keim sem gefur namminu skemmtilega fyllingu og karakter. Döðlurnar verða eins og tjúí karamella og eru dísætar svo ég toppaði nammið með 100% súkkulaði. Það er auðvitað hægt að nota hvaða súkkulaði sem er en sætan frá döðlunum nær alveg að núlla allt biturt bragð frá 100% súkkulaðinu.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • Ferskar mjúkar döðlur

  • Ljóst tahini, helst tahini sem hægt er að hella

  • Lífrænt poppað quinoa frá Rapunzel

  • 100% súkkulaði, það fæst bæði frá Kaju en ég fann líka aðra tegund í Brauðhúsinu í Grímsbæ

  • Salt, ég er að nota krækiberjasalt frá Breiðagerði

Magn fer eftir því hvað þú átt mikið pláss í frystinum og svo hvað kemst mikið oná döðlurnar.

Aðferð:

  1. Byrjið á að steinhreinsa döðlurnar og leggja þær nokkuð flatar á bökunarpappír þétt við hver aðra. Setjið svo aðra örk af bökunarpappír yfir og fletjið þær ennþá meira út með t.d. bökunarkefli eða glasi.

  2. Dreifið tahini yfir döðlurnar

  3. Dreifð svo poppuðu quinoa yfir tahinilagið

  4. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið svo yfir quinoað og dreifð úr því svo það myndi þekjandi súkkulaðilag.

  5. Komið örkinni fyrir í nestisboxi eða á plötu sem kemst í frystinn og leyfið að kólna í ca klukkustund

  6. Takið út úr frysti, skerið í mola og njótið

  7. …. sleikið puttana þegar nammið er búið og gerið meira ;)

Hér má sjá link að videoi með aðferð: https://www.instagram.com/p/CxXeCzvAifo/

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Tær grænmetissúpa

Next
Next

Lifandi guacamole