Klassískur hummus í sparifötum

Miðausturlenska matargerð heillar mig örugglega mest af allri matargerð og hummus í morgunmat er eitthvað sem ég gæti vel tileinkað mér. Hér er ekta heimagerður hummus úr soðnum kjúklingabaunum með mikið af tahini því þannig Á hummus að vera að mínu mati.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á Íslandi

Þú þarft:

  • 2 bollar soðnar lífrænar kjúklingabaunir frá Rapunzel

  • 250g ljóst tahini (1 krukka frá Rapunzel)

  • 1 geiralaus hvítlaukur (kúluhvítlaukur)

  • safi úr 1-1 1/2 sítrónu

  • 1/3 bolli olía

  • 1/3 bolli ískalt vatn

  • ca 1/2 tsk jurtasalt

Topping:

  • 1 tómatur

  • 1/2 gúrka

  • 1/2 rauðlaukur

  • 1/2 papríka

  • 1/4 dl ólífuolía

  • 1 tsk zaatar krydd

  • 1 msk sítrónusafi

  • 1/8 tsk jurtasalt

  • 1 hvítlauksrif 

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja *soðnar kjúklingabaunirnar í matvinnsluvél, látið vélina vinna í dágóðan tíma með nokkrum stoppum þar sem skafað er meðfram hliðunum.

  2. Því næst er tahini og sítrónu safa bætt útí.

  3. Loks er olíu og vatni bætt útí í mjórri bunu á meðan matvinnsluvélin vinnur.

  4. Að lokum er hann smakkaður til og saltaður eftir þörf.

  5. Skerið síðan grænmetið smátt og blandið saman í sér skál ásamt olíu, sítrónusafa, hvítlauk og kryddi.

  6. Berið svo fram annað hvort til hliðar við hummusinn eða sem topping.

*Aðferð við að sjóða þurrar kjúklingabaunir: Baunirnar lagðar í bleyti yfir nótt með smá matarsóda í vatninu. Endurnýjið vatnið í pottinum og sjóðið í um 40 mínútur. Best er að útbúa hummusinn úr baununum á meðan þær eru heitar. Rúmmál baunanna verður sirka tvöfalt.

Æðislega gott með mjúku nan brauði, sem hliðarréttur eða í falafel vefjuna.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Sætur rauðrófusmoothie

Next
Next

Sykurlaus súkkulaðisjeik