Ólífu- & pestósnúðar

Vegan ólífu- & pestósnúðar á korteri!

Eftir fyrsta bitann sagði mamma: “Þetta eru nú bara bestu pizzasnúðar sem ég hef smakkað”…….. Og ég er sammála henni!!
Bragðmiklir, mjúkir, djúsí og svo einfaldir.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • XXL tilbúið pizza deig í rúllu

  • 1 krukka rautt vegan pestó frá Rapunzel

  • 1 askja oatly hafrasmurostur (þessi blái)

  • 15-20 stk grænar ólífur (ég notaði frá Rapunzel)

  • 15-20 stk svartar ólífur

  • 1 gulur laukur

  • 1/4 tsk salt

  • 2 msk olía

  • 1/2 geiralaus hvítlaukur

Aðferð:

  1. Blandið pestóinu við hafrasmurostinn í skál ásamt saltinu.

  2. Skerið lauk og ólífur smátt.

  3. Fletjið út pizzadeigið og smyrjið pestósmurostablöndunni á og drefið ólívum og lauk jafnt yfir deigið.

  4. Rúllið deiginu upp og skerið í snúða og raðið snúðunum á ofnplötu.

  5. Útbúið hvítlauksolíu með því að rífa niður hvítlaukinn og blanda við olíuna. Penslið snúðana með hvítlauksolíunni.

  6. Bakið snúðana í ofni á 200 gráðum í ca 12 mínútur eða þar til þeir virðast tilbúnir.

Kærkomið millimál handa litlum ólífuóðum strumpum eftir leikskóla eða í nestið 😉

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Oatly perludipp

Next
Next

One pot pasta