Ferskt kartöflusalat með sinnepssósu
Ég veit ekki hvort þið munið eftir því en ég gerði svo geggjaða sinnepssósu sem minnir á sinnepsmæjó um daginn og sennilega búin að gera á hverjum degi síðan. Ég deildi því með ykkur að hún hlyti að vera tryllt í kartöflusalat. Ég hef ekki hætt að hugsa um það síðan. Loksins kom ég mér í gír og halelúja það var svo sannarlega satt.
Hvað er meira sumarlegt en djúsí kartöflusalat? Enn betra ef það er gert úr heilnæmum hráefnum! Sósan er úr kasjúhnetum og þú myndir aldrei gruna það ef ég væri ekki búin að