Páskarnir liðnir og allir í súkkulaðikóma… hér er ég með geggjaðan næringarríkan súkkulaðismoothie ef þú þarft smá afvötnun eftir súkkulaðiátið án þess að fara í sykurvímu og fá illt í magann.

Kakóbragðið kemur sterkt í gegn á meðan kirsuberin gera hann ferskan sem gerir góðan grunn að smoothie sem hægt er að bústa upp ennþá meira með því að bæta í hann ofurfæðum sem þú vilt fá inní daginn. Chaga, moringa, engifer og hampfræ eru t.d. hráefni sem eiga það til að fljóta með í þessum grunni hjá mér.

Færslan er unnin í samstarfi við Rapunzel á íslandi.

Þú þarft:

  • 2 banana

  • 220 gr frosin kirsuber

  • 2 msk lífrænt kakó frá Rapunzel

  • 5 ferskar steinhreinsaðar döðlur

  • 2-2,5 dl ósykruð möndlumjólk, hér er uppástunga af heimagerðri

  • 1 msk möndlusmjör (valfrjálst)

Fyrir þykkari smoothie er tilvalið að nota frosna banana í smoothieinn.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Ferskt kartöflusalat með sinnepssósu

Next
Next

Möndlu- og kókoskökur