Asískt salat með tófú

Hér er salat sem hefur verið í miklu uppáhaldi en tófú og asískar dressingar er eitthvað sem ég fæ aldrei leið á. Ég átti alltaf eftir að birta uppskriftina hér á síðunni en þessa birti ég á instagram í janúar í fyrra og uppskriftina er einnig að finna í uppskriftaappi krónunnar og því hægt að kaupa allt í uppskriftina með einu klikki, frekar þægilegt.

Færslan er unnin í samstarfi við Krónuna.

Þú þarft:

  • olía

  • 1 kubbur tófú (450gr)

  • 1-1,5 msk glútenlaus sojasósa

  • 2 dl frosnar edamamebaunir

  • ¼ rauðlaukur

  • ½ þroskaður mangó

  • 125 gr salatblanda frá lambhaga

  • 1 avocado

  • ½ rauð paprika

  • ½ gúrka

Hnetusmjörs- og sesamdressing:

  • ½ lime (safinn)

  • 1 msk hnetusmjör

  • ¼ tsk chiliflögur

  • ½ dl ólífuolía

  • 2 msk sesamolía

  • 1 msk glútenlaus sojasósa

  • 1 msk engifer

  • ½ geiralaus hvítlaukur

Aðferð:

  1. Byrjið á að taka tófúið úr pakkningunni, skola kubbinn og þerra vel. Mér finnst best að vefja hann inní eldhúsbréf og pressa hann léttilega með höndunum (það er hægt að gera þetta daginn áður og láta kubbinn liggja innvafðann undir þungu fargi yfir nóttina og fá ennþá þéttari áferð, en það þarf ekki).

  2. Skerið tófúkubbinn í litla teninga, 1,5 cm x 1,5 cm, og hitið á þurri pönnu í nokkrar mínútur. Bætið svo ca 2 msk olíu útá pönnuna, veltið reglulega og steikið þar til gul skorpa hefur myndast á flestar hliðar teninganna. Bætið við olíu eftir þörf svo pannan verði ekki alveg þurr. Þegar skorpa hefur myndast bætið þá 1-1,5 msk af sojasósu útá pönnuna og leyfið tófúinu að draga allan vökvann í sig.

  3. Afþýðið edamamebaunirnar með því að leggja þær í sjóðandi vatn og skerið ferska grænmetið og mangóinn smátt.

  4. Útbúið dressinguna með að setja allt sem í hana fer í lítinn blender eða blandið með töfrasprota.

  5. Berið fram sem salatdisk með salatgrunni, toppað með smáttskornu grænmeti, mangó, edamamebaunum, sojasteiktu tófúteningum og toppið með dressingunni.

    Einnig er gott að toppa með kóreander en þarf ekki.

Verði ykkur að góðu.

Previous
Previous

Lífrænt hrákex úr hörfræjum

Next
Next

MöndluMæjó