Nokkur atriði sem ég vil að fólk sé meðvitað um áður en viðtal er bókað.

Til að ná sem bestum árangri getur verið nauðsynlegt að gera drastískar lífstílsbreytingar og þar sem jurtir og bætiefni eru ekki niðurgreidd á sama hátt og lyf getur þetta verið kostnaðarsamt.

Svo ef þú hefur viljann og vonina að vopni þá get ég mögulega aðstoðað þig við það að taka virkan þátt í þínum bata.

Ráðgjöf sem þessi myndi flokkast sem lífstílsráðgjöf og fellur utan hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og byggir fyrst og fremst á reynslu minni og þeirri þekkingu sem ég hef sankað að mér í gegnum mitt krabbameinsferli. Markmiðið er að efla heilsu fólks, lina þjáningar, draga úr óþægindum og stuðla að heilun.

Verð fyrir viðtalstímann er: 10.000kr og má gera ráð fyrir að viðtalið taki um 1 klst.

Að taka virkan þátt í eigin bata.

Í janúar 2022 greindist ég með Hodgkins eitilfrumukrabbamein. Eftir að hafa gengið í gegnum lyfjameðferð sem ekki bar árangur tók ég ákvörðun um að afþakka frekari lyfjameðferð og leita náttúrulegra leiða að lækningu. Þetta hefur verið mesti skóli lífs míns og í raun alveg stórkostleg uppgötvun í því hversu máttugur líkaminn er með réttu verkfærin í höndunum.

Ef þú ert að glíma við krabbamein og ert forvitin/nn að vita meira um það hvernig þú getur tekið virkann þátt í þínum bata, hvort sem þú ert í lyfjameðferð eða ekki þá getur þú bókað viðtal með mér þar sem við förum yfir verkfærakistuna.

Mín ráðgjöf byggir fyrst og fremst á minni reynslu og þeirri þekkingu sem ég sankaði að mér í gegnum mitt krabbameinsferli.

Hér getur þú lesið meira um aðdragandann að minni náttúrulegu vegferð og stöðuna í dag.